• Forsíða
  • Safnið
    • Um safnið
    • Starfsfólk
    • Styrktaraðilar
  • Munir
  • Myndir
  • Tenglar
  • Hér má sjá minjar um horfna verkmenningu, veiðarfæri, verkfæri og ýmsan búnað sem tilheyrði línuútgerð vélbáta á síðustu öld.
Find out more

Safnið er opið frá 5. júní til 31. ágúst á hverjum degi kl. 13-17.

Hópar geta pantað með fyrirvara á öðrum tímum

í síma 861 5524 - Margrét.

Aðgangur er ókeypis en gestum gefst kostur á að styrkja rekstur safnsins með frjálsum framlögum.

  • Sögur úr útgerðinni
  • Látra-Björg
  • Skip og bátar á Grenivík
  • Styrktaraðilar

Safngripir

  • 44 stk.
  • 15.06.2016
Fyrri 1 2 Næsta
Sjóhattar
Bárufleygur úr segldúk, fylltur af lýsi til að lægja öldur
Bjóð
Trilla. Stóll undir línubalann með snúningskrossi.
Skrúfa af trillu
Færarúlla. Eigandi Birgir Már Birgisson
Austurstrog. Notað til að ausa sjó upp úr austrinum á árabátum
Handbörur. Saltfiskbörur.
Þegar saltfiskurinn var þurrkaður var hann tekinn úr stakknum og staflað á svona börur sem tveir báru á milli sín til að dreifa honum um fjöruna. Best var að breiða fiskinn þar sem gróf möl var í fjörunni og enginn sandur. Mölin var alltaf hrein, sjórinn sá um það. Til að nýta plássið var fiskinum raðað vandlega. Honum var snúið um miðjan dag ef þurrkur hélst. Ef fór að rigna þurfti hraðar hendur að taka saman og stakka. Þá var hlaðið eins og komst á börurnar og hlaupið með þær.
Siglingaljós
Refskott. Enginn veit lengur hvenær eða hvers vegna þeim var komið fyrir þarna uppi í rjáfri á skúrnum.
Akkeri
Dregg
Hermann TH 34. Sigfús Þorsteinsson í Kálfsskinni smíðaði hann inni í Hlíðarenda 1921 eða 1922
Tunnuborar notaðir til að bora sponsgöt
Goggar
Síldarháfar
Lóðatré
Krökur
Bússur. 
Rauða gúmmíið á þessum bússum morknaði og datt af. Safnið vantar endilega heilar bússur.
Sjóvettlingar
Baujuljós merkt Gunnari ÞH 34
Baujuljós
Kompás í lausum kassa sem var tekinn með í land að loknum róðri
Skrúfa
Kompás úr Hauk ÞH 35
Lórantæki úr Hugrúnu ÞH 240
Rap glóðarhausvél  sem sett var 1942 í Þór EA 679
Olíutunna sem lengi hékk utan á Hlíðarenda og skammtaði olíu á kabyssuna
Skrúfa
Hjólbörur, ryðgaðar eftir flutning á salti og fiski
Fyrri 1 2 Næsta

Útgerðarminjasafnið á Grenivík

  • Sæland 2
  • 610 Grenivík
  • Tel. +354 861 5524
  • bjornai@internet.is