Safnið er opið frá 5. júní til 31. ágúst á hverjum degi kl. 13-17.
Hópar geta pantað með fyrirvara á öðrum tímum
í síma 861 5524 - Margrét.
Aðgangur er ókeypis en gestum gefst kostur á að styrkja rekstur safnsins með frjálsum framlögum.
Þriðjudaginn 12. september, verða rifnir hausar og harðfiskur barinn í Útgerðarminjasafninu, kl. 17 – 19. Allir velkomnir í safnið að fá sér bragð og einhver væta verður í boði til að renna fiskinum niður með.